Þrjár málstofur á Menntakviku
Kjörsviðið Nám Fullorðinna kemur að þremur málstofum á næstu Menntakviku 2020 – Árlegri ráðstefnu Menntavísindasviðs.
Að þessu sinni er ráðstefnan óvenju stór og hún fer fram rafrænt, með fjarfundabúnaði. Þátttaka er ókeypis og öllum frjáls, tenglar á málstofurnar eru í tengdum færslum hér fyrir neðan.
Menntakvika 2020 fram fimmtudaginn 1. október og föstudaginn 2. október.
Þátttaka er opin og ókeypis.
Kynntu þér nánar málstofurnar sem kjörsviðið kemur að.
Þær snúast á fimmtudaginn um:
- Notkun upplýsingatækni við kennslu: Um það að nota Teams sem námsumsjónarkerfi
- Sköpun og nám, hvernig nám og sköpun eru nátengd fyrirbæri í mannshuganum og afleiðingar þess fyrir nám, kennslu og starfsþróun kennara
- Raunfærnimat, en að þessu sinni raunfærnimat á háskólastigi
og á föstudaginn um:
- Fjarmenntabúðir: Um tilraunir við að flytja eitt gagnlegasta form starfsþróunar: Menntabúðir (e. educamps) á netið. Viðbrögð HÍ og HA og samstarfsaðila við COVID19 faraldrinum í vor.
Skildu eftir svar
Þú verður að skrá þig inn til þess að rita athugasemd.