Um fullorðna námsmenn
Þegar við hugsum um fræðslustarf með fullorðnum sýnist mér það sem hafi mest áhrif á árangur og gæði er að skipuleggjendur og kennarar hafi skýrar gagnlegar hugmyndir (kenningar) um það fólk sem þau eru að vinna með. Öll höfum við einhverjar kenningar um hvernig fólk lærir. Verkefni ykkar í þessum hluta er að kynna ykkur rannsóknir, um fullorðna námsmenn og velta fyrir ykkur hvort það sé öðru vísi að skipuleggja nám fyrir fullorðna en fyrir börn… og þá að hvaða leiti. Skýrar hugmyndir – og kenningar – um það gefa ykkur tól til að túlka það sem þið sjáið og til að segja fyrir um afleiðingar athafna ykkar sem skipuleggjendur eða kennarar.
Meira um fullorðna námsmenn:
- Slóðalistinn minn hjá Diigo (þetta er safn yfir það sem ég rekst á þegar ég vafra um vefinn, ekki allt áhugavert fyrir ykkur)
Sif Böðvarsdóttir said on 22. október, 2014
Fyrsti linkurinn er óaðgengilegur.
Sif Böðvarsdóttir said on 22. október, 2014
Takk fyrir slóðirnar. Ég er að dunda mér við að skoða þær og vista og tagga í Mendelay. Ég held að þetta komi til með að reynast hið gagnlegasta forrit þegar ég er búin að ná tökum á þessu. Nú ætla ég að finna þessar greinar aftur í Mendelay, fingers crossed;)