• Bókarýni
    Kroth, M. og Cranton, P. (2014). Stories of transformative learning. Rotterdam: Sense Publishers.

    Stories of transformative learning er skrifuð fyrir þá sem vinna í eða að fullorð […]

    • Sæl Sóley
      Fín rýni hjá þér og það er skemmtileg hugmynd að bæta sögum í verkfærakistuna okkar við hönnun námsferla. Sögur lífga upp á efni og þær geta t.d hentað til að tengja efni við raunverulegar aðstæður 🙂

  • In reply to: Aníta Jónsdóttir wrote a new post on the site Skipulagning og framkvæmd fræðslu með fullorðnum Námskeiðslýsing    Jákvæður agi – fyrir grunnskóla        Gagnkvæm virðing, samvinna og ábyrgð í þínum skóla […] View

    Mjög flott námskeiðslýsing hjá þér. Væri til í að mæta á þetta námskeið hjá þér sem kennari 🙂
    Ég er alveg sammála þér með verðlagningu, það er rosalega flókið að verðleggja „rétt“. Mjög nauðsynlegt að hafa þessa staðreynd en ég skil vel vangaveltur þínar.

  • Námskeiðslýsing
    Mataræði barna 0-2 ára.
    Upphaf að heilbrigðum matarvenjum, matreiðsla, skipulag og næringarlegur grunnur.

    Átt þú barn sem er að fara byrja borða eða er nýlega farið að borða?
    Hefur þú […]

    • Líst vel á þetta námskeið hjá þér. Ef ég væri enn með barn á þessum aldri, þá værirðu alveg búin að selja mér þetta 🙂

    • Takk fyrir þetta. Hjálpaði mér að komast af stað með mína eigin námskeiðslýsingu, fullt af góðum upplýsingum sem ég ætla að kafa dýpra í til að gera mína lýsingu enn betri.

  • Hér má finna fundargerð fyrir staðlotu 2 sem haldin var föstudaginn 24. mars 2017.

    Virkilega áhugaverður dagur þar sem farið var yfir annars vegar hönnunarnálgun (design thinking) og hinsvegar b […]

    • Takk sóley fyrir fundargerðina
      Já maður datt í gírinn að skoða hvernig maður getur nýtt þessi verkfæri til að nýta í námskeiðsgerð. Mun mjög líklega nýta mér þessar aðferðir í framtíðinni
      Kveðja Drífa

  • In reply to: Þorvaldur H. Gunnarsson wrote a new post on the site Skipulagning og framkvæmd fræðslu með fullorðnum Markmiðsgerð og gildi námsmarkmiða í hönnun námsferla. Námsmarkmið eru ekki bara einhverjar létt […] View

    Sæll Þorvaldur og takk fyrir skýra og nákvæma kynningu á þessari rannsókn.
    Mér fannst hún vera góð upprifjun á markmiðum og leggja meiri áherslu á hversu mikilvæg markmið eru. Ég er sammála umræðunni hérna að ofan að þau eru oft háleit og óskiljanleg fyrir námsmanninn. Þetta þarf maður að taka með sér í gerð námskeiða.

  • In reply to: Sóley Kjerúlf Svansdóttir wrote a new post on the site Skipulagning og framkvæmd fræðslu með fullorðnum Rethinking the role of adults for building the lifelong learning society. Monica Turturean (2015). […] View

    Sammála Ragnhildur. Mér fannst þetta áhugaverður punktur, foreldrar eru ekki aðeins að hugsa um börnin sem ummönnunaraðilar heldur kenna þeim og mér fannst mjög áhugavert að hugsa um formlegt og óformlegt nám í kjölfarið af því. Ég get svo líka gagnrýnt greinina og einn punkturinn er hvernig yfirfærsla á samfélagslegt viðmið í Rúmeníu er hægt að…[Read more]

  • In reply to: Sigríður Ýr Unnarsdóttir wrote a new post on the site Skipulagning og framkvæmd fræðslu með fullorðnum Ímyndaðir yfirburðir; Dunning-Kruger-  og  „Lake Wobegone“ áhrifin. Eru þeir vanhæfu of vanhæfir til þess að […] View

    Ég held að þetta sé oft tilhneiging í starfsviðtölum en ef einstaklingur hefur ofmetið getu sína eða hæfni þá dettur sá einstaklingur oft snemma úr starfinu. En upplifun að vanmeta getu sína þekki ég vel og í minni vinnu held ég að fólk sé oft að uppgötva leynda hæfileika.

    Þetta eru góðir þættir til þess að hafa í huga, sérstaklega þar sem…[Read more]

  • Rethinking the role of adults for building the lifelong learning society.
    Monica Turturean (2015).
    Eins og titillinn gefur til kynna þá fjallar greinin um „lifelong learning“ sem ég kýs að kalla lífstí […]

    • Takk fyrir þetta Sóley
      Maður er alltaf að læra og tengja hluti saman sem maður les eða sér, að samfélagið hafi horft á foreldrar sem umönnunaraðila en ættu kannski frekar að horfa á þá sem kennara. Ja foreldrar eru fyrirmyndir barnanna og þau eru saman öllum stundum þannig foreldrar eru að vissu leyti kennarar. Ég hef ekki áður heyrt orðið kennari notað yfir þetta en það gerir hlutverkið einhvernveginn áhrifameira, sem mér finnst samt að ætti ekki að vera því mér finnst foreldrarhlutverkið vera mikilvægasta hlutverk sem maður fær. En það er alltaf gaman að pæla í hlutunum og það er eitt af því sem ég elska við það að vera í námi það er að hafa ykkur öll með mér í því 😉

      • Sammála Ragnhildur. Mér fannst þetta áhugaverður punktur, foreldrar eru ekki aðeins að hugsa um börnin sem ummönnunaraðilar heldur kenna þeim og mér fannst mjög áhugavert að hugsa um formlegt og óformlegt nám í kjölfarið af því. Ég get svo líka gagnrýnt greinina og einn punkturinn er hvernig yfirfærsla á samfélagslegt viðmið í Rúmeníu er hægt að yfirfæra yfir á okkur hérna á Íslandi.
        og nú pæli ég, höfum við í íslenskunni okkar betra orð yfir „educator“ heldur en kennari?

    • Takk fyrir þetta skemmtilega blogg Sóley 🙂
      Já þetta er áhugavert að pæla í hlutverki foreldra og hvað foreldrahlutverkið hefur mikil áhrif á fullorðið fólk. Lifelong learning segir mikið um það finnst mér. Maður þroskast alveg ótrúlega og er alltaf að læra eitthvað nýtt með því að vera foreldri. Mér finnst svo vel hægt að tengja þetta við Transformative learning eða umbreytingarnám því það á sér svo sannarlega stað þegar fullorðnir eignast barn og læra að vera foreldrar. Svo mikið sem breytist og mikill þroski sem á sér stað (allavega oftast…).

      • Takk fyrir þessa áhugaverðu grein Sóley. Mér finnst áhugavert hvernig þú nálgast þetta Agga að við ættum kannski að líta á foreldra sem kennara. Ég get tekið undir þessa nálgun. Börn læra að mínu mati mikilvægustu hlutina af foreldrum sínum, t.d. gildi og því er mikilvægt að vel sé stutt við foreldra til að mynda með námskeiðum. Hugtakið félagslegur arfur kom líka upp í hugann hjá mér þegar ég hugsa um nám á milli kynslóða. Barn lærir af foreldrum sínum vissa hluti, gildi og venjur sem heldur svo áfram á milli kynslóða.

    • Áhugaverð grein sem þú fjallar um og vekur mann til umhugsunnar um það hvernig nám á milli kynslóða fer fram í nútíma samfélagi. Þar sem samvera er af skornum skammti og allir uppteknir af því að taka þátt í tómstundum, skóla og vinnu ekki bara börn heldur foreldrar líka. Það skiptir samfélagið miklu máli að félagsleg hæfni komandi kynslóða og að þær þekkji hvað það er að vera borgari í því samfélagi sem við búum við.
      Samfélagsmynd okkar hér á Íslandi hefur þróast hratt frá því að vera bændasamfélag þar sem börnin voru með foreldrum allann daginn í það að verða það samfélag sem við þekkjum í dag. Það er ekki því úr vegi að huga að félagslegum samskiptum barna og foreldra eins og segir í greininni að finna sameigninleg áhugamál því foreldrar eru ekki bara umönnunaraðilar heldur eru þeir að kenna börnum sínum.

  • In reply to: Þorvaldur H. Gunnarsson wrote a new post on the site Skipulagning og framkvæmd fræðslu með fullorðnum Nám fullorðinna: Hvað vitum við fyrir víst? © Eftir Ron og Susan Zemke © Lauslega þýtt og ritstýrt á ísl […] View

    Frábær samantekt hjá þér Þorvaldur!
    Mér finnst frábært hvað það er hægt að koma miklum upplýsingum fram á einfaldan og aðgengilegan hátt með því að stikla á stóru.
    Áhugavert að greinin er yfir 20 ára gömul en eldist greinilega mjög vel.

    Það sem ég hef aðeins verið að velta fyrir mér undafarnar vikur er hvernig það er hægt að yfirfæra efn…[Read more]

  • Sóley Kjerúlf Svansdóttir changed their profile picture 7 years, 2 months ago