Hvernig býrð þú til bloggfærslu með WordPress
jan 22 2018 in Leiðbeiningar by Hróbjartur Árnason
Þessi vefur er unninn með blogg kerfinu eða vefumsjónarkerfinu „WordPress“. Það býður uppá að allir þátttakendur á vefnum geti skrifað sínar eigin bloggfærslur og birt á vefnum, t.d. á námskeiðsvef þess námskeiðs sem þeir sækja þá stundina.
Það er einfalt að búa til nýja bloggfærslu:
- Þú þarft að vera skráð/ur inn á vefinn (ef þú sért skráð/ur inn er svört rönd efst á skjánum með nafni þínu og vonandi mynd.
- Smelltu á „nýtt“ fyrir miðri svörtu röndinni.
- Þá opnast nýtt viðmót með stórum auðum reit fyrir textann sem þú ætlar að skrifa (ritillinn)
- Byrjaðu á að gefa færslunni grípandi og skýran titil
- Skrifaðu færsluna
- Settu inn mynd
- Ef hún er á tölvunni þinni, þá staðsetur þú bendilinn þar sem myndin á að birtast og dregur myndina úr myndamöppunni þinni yfir á textareitinn
- Ef hún er á netinu (t.d. á Flickr eða WikiMedia) borgar sig að sækja svo kallaðan „Embed“ kóða og skeyta honum inn á réttan stað. En til þess þarftu að opna „texta viðmót“ ritilsins
(Sjá flipann „Texti“ hér fyrir ofan ritvinnslutáknin)
Þá finnur þú staðinn sem myndin á að birtast og skeytir kóðanum, sem þú sóttir á vefinn sem geymir myndina, þar inn. - Lestu nánar um þessa aðferð hér
- Þegar færslan er tilbúin þarf að flokka hana:
- Veldu flokk sem færslan á að birtast undir. Listi yfir mögulega flokka er að finna hægra megin við textareitinn
- Skráðu efnisorð (eða s.k. „tög“ / notendavalin efnisorð) listi byrjaðu að skrifa í reitinn hægra megin, fyrir neðan flokkana. Ef svipað efnisorð er þegar í kerfinu, kemur uppástunda um það fyrir neðan reitinn. Gott er að velja uppástungu, svo stafsetning sé eins hjá öllum sem nota sama efnisorð.
- Þá er bara að birta færsluna: Fyrir ofan reitinn með flokkunum er hnappur til að „Birta“ færsluna. Þar fyrir ofan eru valmöguleikar í tengslum við birtingu: Vista sem drög, birta aðeins fyrir notendum vefsins, tímasetja birtingu… Sjá líka hér
- Þá ertu búin/n að birta bloggfærslu
Leave a reply
You must be logged in to post a comment.