Byrja, hætta, halda áfram (Start – Stop – Continue)
Byrja, hætta, halda áfram (start, stop, continue) er þekkt aðferð til að kanna á óformlegan hátt hug þátttakenda til námskeiðs um miðbik þess. Aðferðin gefur þátttakendum tækifæri til þess að láta í ljósi hvernig þeim líður á námskeiðinu og hvernig þeim finnst námskeiðið ganga.
Lýsing:
Þátttakendur eru beðnir um að svara þremur markvissum spurningum um viðhorf þeirra til framhald námskeiðsins:
- Hvað á að byrja að gera?
- Hvað á að halda áfram með?
- Hvað á að hætta að gera?
Framkvæmd:
Leiðbeinandi biður nemendur í lok kennslustundar að svara spurningunum hver fyrir sig á miða og skila. Fyrir næstu kennslustund tekur leiðbeinandi saman niðurstöður í töflu t.d. í Excel og í upphafi næstu kennslustundar fer leiðbeinandi yfir svörin með hópnum og þau tekin til umræðu.
Í umræðunni þarf að leiðbeinandi að benda á :
- Möguleg misvísandi skilaboð, þar sem þátttakendur hafa misjafnar skoðanir á því hvernig námskeiðið gengur og misjafnar ráðleggingar, t.a.m. gæti hentað sumum að fara hægar yfir efnið en aðrir vilja fara hraðar. Með því að benda á slíkt er hægt að auka skilning þátttakenda á mismunandi þörfum innan hópsins.
- Hverju er mögulega hægt að breyta og hvernig leiðbeinandi getur komið til móts við óskir þátttakenda.
- Óskir um breytingar sem ekki er hægt að verða við og útskýra hvers vegna ekki, það getur aukið skilning þátttakenda á t.d. vali á kennsluaðferðum eða verkefnum.
Hér fyrir neðan er dæmi um hvernig „Start, stop, continue“ samantektartafla getur litið út:
Start | Stop | Continue |
Hraðari yfirferð námsefnis | Of mörg verkefni | Bjóða fram aðstoð/gott aðgengi að leiðbeinanda. |
Setja glærur á netið fyrir tíma | Senda marga pósta á nemendur | Leggja fram svör við dæmum |
Fleiri æfingardæmi | Endurtekning námsefnis | Spurningar til nemenda um hvernig gengur. |
Aðrar útfærslur:
Þessi aðferð er einnig gagnleg í hópavinnu t.a.m. á vinnustöðum, þegar starfshópur þarf að endurmeta eða endurbæta samstarf sitt og vill skoða það sem áunnist hefur og hvað þarf að gera til að klára verkefni.
Aðferðina má útfæra í hópavinnu með því að hengja upp þrjú veggspjöld, eitt fyrir hverja spurningu. Þátttakendur fá spjöld/post-it miða til að skrifa á svör við spurningunum. Hver og einn ígrundar og skrifar fyrir sig og eftir fyrirfram ákveðinn tíma eru svörin hengd upp á veggspjöldin. Svörin eru þá flokkuð í þemu og ef þau eru ólík og mörg er hægt að láta hópinn forgangsraða með límmiðum. Að lokum er útkoman rædd í hópnum og næstu skref ákveðin.
Af hverju?
Þessi aðferð er góð leið til að fá viðbrögð frá þátttakendum áður en námskeiði er lokið og koma þannig í veg fyrir að óánægja með námskeið byggist upp. Jafnframt gefst tækifæri il að bregðast við ábendingum og betrumbæta námskeiðið ef þörf er á.
Heimildir og ítarefni:
http://www.bu.edu/ctl/teaching-resources/start-stop-continue/
https://www.retrium.com/resources/techniques/start-stop-continue
http://www.people-results.com/start-stop-continue/
Skildu eftir svar
Þú verður að skrá þig inn til þess að rita athugasemd.