- 
	
	Guðríður E Pálmarsdóttir posted an update 12 years, 9 months ago Hæ, Takk fyrir síðast öll sömul, 🙂 
 Hér kemur umbeðin uppskrift af muslistykkjum úr bókinni; Heilsuréttir fjölskyldunnar.135g tröllhafrar(haframjöjl) 
 75 spelthveiti
 125g íslenskt smjör
 2 msk lífrænt hunang
 80g þurrkuð trönuber
 140g pistasíuhnetur( aðrar hnetur)n gróft saxaðar.
 40g hrásykur/xylitol.
 Blanda saman í skál, harframjöli, spelti, trönuberjum og hnetum.
 Hita ofn í 180 °C, setja bökunarpappír í botn á eldföstu móti
 Setja í lítinn pott sykur, smjör og hunang. Hita varlega svo sykur leysist upp.
 Hellið úr pottinum yfir þurrefnin og hræra saman.
 Hellt í formið, ofaná bökunarpappír, þrýsta létt á með skeið.
 Baka í 20 mínútur eða þartil gullið.
 Njótið hvers munnbita 🙂