Your site
28. mars, 2024 12:24

Hvað er svona merkilegt… (Fyrirlestur Hróbjarts fyrir nemendur í kennslufræði framhaldsskóla)

- Er eitthvað sérstakt við það að vera fullorðinn námsmaður??
- Þurfa fullorðnir öðruvísi kennslu en börn og unglingar?
- Hvað er svona merkilegt við það að vera fullorðinn...?
(Smelltu á tenglilinn til að lesa grein eftir Hróbjart)

Fólk þarf alltaf að læra nýja hluti… alla ævi. Það þarf að takast á við verkefni sem tengjast ólíkum æviskeiðum, það er eins og hvert æviskeið hafi fólgin í sér viðfangsefni sem við þurfum að ná tökum á og við tökumst á við þau og náum valdi á þeim með þvi að læra.

Fólk lendir í krísum, það fær ný tækifæri eða þarf að „byrja upp á nýtt“, stofna ti nýrra sambanda, taka upp allt öðru vísi vinnu eða setjast að í ókunnu landi… Allt eru þetta viðfangsefni sem kalla á að fólk læri nýja hluti. Nái valdi á aðferðum, tungumálum, tækjum, eða tileinki sér ný viðhorf, auki hæfni sína og/eða leikni á tilteknum svæðum lífsins.

Stundum þarf að takast á við breytingar á vinnustað. Það koma ný tæki, nýr hugbúnaður, nýjir samkeppnisaðilar og nýjar aðferðir til að gera hlutina og starfsfólk fyrirtækisins eða stofnunarinnar þarf að læra að bregðast við breytingunum, laga sig að þeim eða undirbúa sig fyrir þær.

Fólk getur lært eitthvað af hendingu, eða það getur ákeðið að læra eitthvað. Nám sem fólk leggur á sig til að læra eitthvað nýtt getur verið skipulagt af þeim sjálfum eða af öðrum. Það er þessi hluti náms –  nám skipulagt af öðrum – sem kennslufræðin fæst við. Þegar við tölum um nám skipulagt fyrir fullorðna erum við að tala um breytingastarf, umbótastarf á vinnustað, ráðstefnur, fræðslufundi, fyrirlestra, námskeið og lengra nám við menntastofnanir, vefstýrt nám og starfssamfélög. Þetta og meira flokkast undir nám skipulagt af öðrum fyrir fullorðna.  (Smelltu hér til að lesa meira um þetta.)

Þegar við ætlum að skipuleggja nám fyrir fullorðið fólk er gagnlegt að hafa einhverjar hugmyndir um sérkenni fullorðinna námsmanna. Rannsóknir hafa sýnt fram á það og reynsla allra sem koma að kennslu styður það að hver aldurshópur hefur sérstöðu, sem er gott að þekkja og skilja til að geta skipulagt nám fyrir aðra og kennt hverjum aldurshópi fyrir sig.

Malcolm Knowles er þekktur fyrir að hafa haldið því fram að fullorðnir læri öðruvísi, og þannig sett kennslufræði fullorðinna á kortið. Sjá umfjöllun í inngangi að bók hans sem er endurútgefin reglulega:

Fyrirlestur Hróbjarts um Andragogy Malcolm Knowles:

 photo FNA-Stadlota-Eitt-11.jpg

Þú getur hlustað á stutt myndskeið um sama efni og lesið nánar hér

Þá er líka þess virði að hlusta á þennan TED fyrirlestur um ævinám – Lifelong Learning:

Sjálfsstýrt nám

Meiri hluti þess sem við lærum lærum við sjálf. Rannsóknir hafa sýnt að meiri hluti fullorðinna tekur sér fyririr nokkur svo kölluð námsverkefni á hverju ári – sumar rannsóknir fundu 7 að meðaltali (Tough, 1971).

Örar breytingar í samfélagi, vinnustöðum og tækni kalla á að fólk kunni til verka og sé reiðubúið að læra nýja hluti og að gera það að eigin frumkvæði og undir eigin stjórn. Til þess að það gangi vel hefur það þótt eðlilegt að allt nám sem skipulagt er af kennurum innihaldi einhverja þætti sem auka færni þátttakenda í að skipuleggja sjálfstætt nám sitt og að auka við þekkingu sína, hæfni og leikni upp á eigin spýtur. Því er full ástæða að spá í það, þegar maður skipuleggur nýtt námskeið að velta fyrir sér hvaða verkefni maður gefur nemendum og hvaða aðferðir og verkfæri maður þjálfar þá í að nota sem munu nýtast þeim við sitt eigið sjálfstæða nám.

Það mætti segja að það sé hlutverk allra kennara að styðja við sjálfstýrt ævinám nemenda sinna. Þannig að nemendur læri amk. eitthvað sem gerir þá að betri námsmönnum, hvort sem þeir læra í hóp eða sjálfir. Nám ætti þá að stuðla að því að fólk kunni til verka við það að afla sér þekkingar og þjálfa hæfni og leikni sem það þarf á ólíkum sviðum og stigum lifsins.

Fyrirlestur Hróbjarts sem hugarkort:

 ==> Viltu læra að búa til svona hugarkort? Smelltu þá hér

Skildu eftir svar