Your site
19. apríl, 2024 08:43

Gagnlegt og ánægjulegt samtal

Julie Allen og John Field fóru á kostum á skemmtilegu verkstæði um Ævimenntun og skóla margbeytileikans. Umræður þátttakenda sem komu frá fræðslumiðstöðvum alls konar voru gagnlegar og áhugaverðar.

Julie hóf verkstæðið með því að leiða hópinn inn í þemað um skóla margbreytileikans með erindi sem hún kallaði Inclusion – Exclusion

Að loknum umræðum tóku þau John Field og Julie höndum saman um að leiða hópinn inn í umræðu um það  hvernig kenningar um félagsauð geti nýst í umræðunni um skóla margbreytileikans annars vegar og ævinám hins vegar.

Þátttakendur prófuðu hugmyndina um félagsauð á eigin lífi og ræddu um notkun þeirra í þeirra starfi.

Að loknu hádegishlé tók John Field við og ræddi  um hreyfanleika vinnuafls (Mobilities) í menntun og atvinnu.

Verkstæðinu lauk með almennum umræðum um gagn og afleiðingar þessara hugmynda í starfi þátttakenda.

Prof. Julie Allen og Prof. John Field eru færðar þakkir fyrir frábæran dag.

Glærur:

Myndir

Skildu eftir svar