• Tryggvi Thayer changed their profile picture 8 years, 6 months ago

  • In reply to: Tryggvi Thayer wrote a new post on the site namfullordinna.is Hvað er framtíðarfræði? Framtíðarfræði er fræðigrein sem miðar að því að skapa og miðla þekkingu um mögulega tæknilega, félagslega og umhver […] View

    Þarna hittirðu eiginlega naglann á höfuðið – allavega hvað varðar fyrsta skrefið. Það er að við sem kennarar gerum okkur grein fyrir – og höfum ávallt í huga – að hlutirnir, og þá sérstaklega tæknin, breytist. Hvernig eigum við þá að haga okkar kennslu ef þetta er (eða verður) raunin? Eitt er, eins og þú segir, að færa fókusinn af tækninni (sem…[Read more]

  • In reply to: Tryggvi Thayer wrote a new post on the site namfullordinna.is Hvað er framtíðarfræði? Framtíðarfræði er fræðigrein sem miðar að því að skapa og miðla þekkingu um mögulega tæknilega, félagslega og umhver […] View

    Eitt sem við getum gert er að vera meðvituð um að tækniþróun hefur áhrif á væntingar sem eru gerðar til námsforms og -umhverfis og að við sem sinnum kennslu þurfum þá ávallt að vera tilbúin að bregðast við breyttu viðhorfi og væntingum. T.d. þegar við útbúum námsefni má huga að því að námsefnið er þannig gert að við getum auðveldlega uppfært það o…[Read more]

  • In reply to: Tryggvi Thayer wrote a new post on the site namfullordinna.is Hvað er framtíðarfræði? Framtíðarfræði er fræðigrein sem miðar að því að skapa og miðla þekkingu um mögulega tæknilega, félagslega og umhver […] View

    Varðandi síðari athugasemdina: Þetta er góður punktur en ég myndi samt halda því fram að þó svo að um væri að ræða s.k. „just in time“ (JIT) nám, eða eitthvað þvíumlíkt, þá spilar framtíðin samt inn í, þá sem óáþreifanlegur (e. tacit) þáttur. Það er að segja, hvernig við kennum hluti mótar væntingar nemenda til styttri og lengri tíma. Við getum, e…[Read more]

  • Hvað er framtíðarfræði?
    Framtíðarfræði er fræðigrein sem miðar að því að skapa og miðla þekkingu um mögulega tæknilega, félagslega og umhverfislega þróun til lengri tíma. Framtíðarfræði varð til […]

    • Takk Tryggvi, fyrr þennan pistil!
      Mér finnst framtíðarfræðin einmitt gagnast öllum þeim sem huga að símenntun og ævimenntun á einhvern hátt, við það að hafa augun opin fyrir því hver samfélagið gæti verið að þróast. Það nýtist þeim við skipulagningu nams á öllum plönum. Það hjálpar þeim að svara spurningum eins og “Hvað þýðir það sem er að gerast núna, fyrir námsþarfir fullorðinna, næsta haust, eftir 2-3 ár eða eftirr 5 ár?”. Famtíðarsýn getur hjálpað kennaranum að velja námsefni fyrir nemendur sína og aðferðir: Túlkun hans á því sem er að gera getu þá leitt hann til að álykta að fljótlega verði þörf fyrir ákveðna hæfni, færni eða þekkingu, sem hann hjálpar þá nemendum sínum á að kynna sér eða þjálfa sig í. Sjálfur upplifði ég þetta þegar ég var að lærra hebresku í Ísrael. Sumir kennararnir voru sérlega lunknir í að finna orð sem voru að koma upp í samfélagsumræðunni, þannig að við lærðum orð, sem við rákumst svo oft á í blöðum, útvarpi og sjónvarpi næstu daga og vikur á eftir…

      Eitt sem þú segir um menntun langar mig þó til að skoða nánar: “Menntum alltaf fyrir framtíðina”.
      Fyrri athugasemndin: Í fullorðinsfræðslunni er sterk hefð fyrir því að líta svo á að þeir sem skipuleggja nám fyrir aðra og kenna hafi það hlutverk að hjálpa fólki að læra, og þar með mennta sig. Það eru til margar skemmtilegar pælingar einmitt um það hver sé raunverulega gerandinn í menntun…
      Síðari athugsemdin tengist því að mennta alltaf fyrir framtíðina… Vissulega getur framtíðin verið mjög teigjanlegt fyrirbæri, og spurning hvað menntun er líka, en, það er mjög algengt að fullorðnir læri til þess að takast á við breytingu sem hefur þegar orðið og þeir þurfa að takast á við, stundum er hún stór – eins og atvinnumissir, eða heilsubestur – en stundum frekar lítil eins og nýtt tæki komið á heimilið sem þarf að nota núna!
      En þetta eru smá hártoganir. 😉

      Aðal málið er að ég er sammála þér um að allir þeir sem koma að menntamálum hafi gott af – þurfi nauðsynlega – að horfa til framtíðar, einmitt vegna þeirrar framtíðar sem fólk er flest að mennta sig til, framtíðar sem flestir eiga í vændum og vilja vera tilbúnir fyrir, hvort sem þeir vinni að æskilegri framtíð, eða geri sig hæfa til að blómstra í væntanlegri framtíð.

      • Varðandi síðari athugasemdina: Þetta er góður punktur en ég myndi samt halda því fram að þó svo að um væri að ræða s.k. „just in time“ (JIT) nám, eða eitthvað þvíumlíkt, þá spilar framtíðin samt inn í, þá sem óáþreifanlegur (e. tacit) þáttur. Það er að segja, hvernig við kennum hluti mótar væntingar nemenda til styttri og lengri tíma. Við getum, e.o. þú segir, kennt fólki að takast á við breytingu sem þegar hefur orðið, en ef við kennum það eins og engra frekari breytinga er að vænta, erum við þá ekki svolítið að svíkja nemandann?

        • Vissulega!
          Það sem ég vildi bara benda á er að hvati fullorðinna til að læra eitthvað er oft í núinu… Þeir vilja gjarnan ráða við eitthvað sem þeir þurfa að gera strax. En ábyrgð okkar sem kennum er vissulega að beina sjónum okkar og þeirrra fram á veginn.

      • Takk fyrir áhugaverða grein um framtíðarfræði og tengsl hennar við menntun. Við sem stöfum við kennslu vitum að við þurfum í upphaf námskeiða að taka mið af ólíkum nemendahópum með mismunandi getu, þarfir og stefnu. Eftir þessum ólíku hópum setjum við upp markmiðin, hvor sem við gerum þau áður en við byrjum að kenna eða jafnvel með nemendum í byrjun námskeiðs. Margir kunna nú að hvá en já, það er vissulega þannig að ólíkar námsþarfir- og geta nemenda kunna að breyta (stundum gjörbreyta) fyrirhuguðu skipulagi kennarans. Þá þarf að skoða framtíðarsýnina upp á nýtt útfrá þörfum, getu og áhuga nemenda. Þá skoðum og metum við saman þessa framtíðarsýn! Sjálf upplifi ég þetta reglulega með mínu fólki, sem eru innflytjendur, og er geta þeirra og styrkleikar oft æði ólík eftir hverjum og einum einstaklingi. Þó er reynt að raða saman fólki í hópa sem eru nokkurn veginn á sama getustigi í íslenskunni, stundum tekst þetta en ekki alltaf. Þá er það kennarans að meta þörfina fyrir ákveðna færni og hjálpa nemendum að þjálfa sig í málinu og kynna fyrir þeim ólíkar leiðir til náms til að ná settu markmiði. Það er gaman í byrjun námskeiðs að fá fram ólíkar væntingar nemenda og heyra hvað þeir ætla sér að fá út úr náminu, hvar þeir ætla að vera staddir getulega eftir 3, 5 eða 7 vikna tímabil. Framtíðarsýnin, hvar fólk sér sig og hvaða möguleika námið gefur hverjum og einum, er ólík eins og fólkið er sjálft. Sameiginlega markmiðið hjá hópnum er þó alltaf það sama í kjarnanum – það er að verða betri í íslenskunni en þegar það mætti í fyrsta tímann! Hróbjartur talaði um að hvati fullorðinna til að læra sé oft í núinu og þeir vilji ráða við hluti sem þeir þurfa að gera strax. Ég er sammála þessu og svo er gríðarlegum munur á námshvata og framtíðarsýn fólks hvort það komi sjálfviljað í nám eða sé hvatt (eða hreinlega sent) t.d. á vegum Vinnumálastofnunar. En það er efni í aðrar pælingar og pistil.

        • Mig langar bæta einni pælingu við. Það er reglulega áhugavert að velta fyrir sér framtíðarsýn Íslendinga í ljósi fljóttamannaumræðunnar síðustu vikurnar. Þjóðin virðist t.d. alveg klofin í tvær fylkingar þar sem fólk er annað hvort hlynnt því að taka á móti 50+ flóttamönnum eða gjörsamlega mótfallið því og finnst við ekki í stakk búin sem þjóð að sinna þessu brýna verkefni. En okkur ber skylda til þess. Það er athyglisvert hvernig fólk fer á flug og sér fyrir ólíkar framtíðarsýnir í tengslum við málefnið og þær sýnir snúa að samfélagstengdum málum landsins; húsnæðismál bera á góma, efnahagsmál, heilbrigðismál, atvinnumál, félagstengd-, menntamál o.fl. Hér höfum við s.s. lifandi dæmi umræðu dagsins í dag sem snýr að framtíðinni og hefur,bein eða óbein, áhrif á okkur öll á einn eða annan hátt.

    • Framtíðarfræðin er mjög athyglisverð. Við sem störfum við fullorðinsfræðslu þurfum einmitt að huga að henni. Hvernig fullorðnir vilja læra er að breytast mjög mikil. Fólk vill ekki endilega mæta á staðinn heldur vill það geta notað nám á netinu í auknum mæli eða sambland af hvortu tveggja. Við sem skipuleggjum nám fullorðinna þurfum að huga að þessum þætti. Hvernig á að skipuleggja það? Á að gefa kost á aðgengi í gegnum netið að kennslutímum, á að taka upp kennslutíma þannig að nemendur geti horft á þá þegar þeim hentar, hvað með verklega kennslu? Hvernig á að setja fram námsefnið og hvernig eiga nemendur að nálgast það. Hvernig sjáum við fyrir okkur endurmenntun framtíðarinnar? Sjálf sé ég fyrir mér sjálfsnám í auknum mæli kannski með stuðningi.

      • Eitt sem við getum gert er að vera meðvituð um að tækniþróun hefur áhrif á væntingar sem eru gerðar til námsforms og -umhverfis og að við sem sinnum kennslu þurfum þá ávallt að vera tilbúin að bregðast við breyttu viðhorfi og væntingum. T.d. þegar við útbúum námsefni má huga að því að námsefnið er þannig gert að við getum auðveldlega uppfært það og aðlagað til að nýta nýja tæknilega kosti. Það er allt of algengt að námsefni er gert fyrir tiltekna tækni og notkun þannig að þegar tæknilegur veruleiki breytist verður umrætt námsefni ónothæft vegna þess að það verður of mikið mál að aðlaga það fyrir nýja tækni. T.d. er í dag algengt að miða námsefnisgerð við spjaldtölvur en við vitum nú þegar að sú tækni er mjög líklega aðeins milliskref í mun róttækari tækniþróun sem mun eiga sér stað á næstu 5 árum eða svo (Google Glass og úrin sem eru núna að koma á markað eru merki um það sem er að vænta í þessum málum). Er þá verið að smíða það námsefni með fyrirsjáanlegar breytinga í huga? Verður hægt að laga það að úrum eða gleraugum þegar þar að kemur? Eða þarf þá að byrja upp á nýtt með tilheyrandi kostnaði og vinnu?

    • Frábær þessi framtíðarfræði því hún er að mínu mati, skólakerfinu og okkur öllum nauðsynleg. Það væri ótrúlega flott ef menntakerfið gæti alltaf verið skrefinu á undan og þróast samhliða tækni og öðrum breytingum á lífsháttum manna. Tímarnir breytast og mennirnir með. En það sem ég fór að hugsa eftir lesturinn á þessum pistli, er þá ekki vandi fólginn í því að sníða kennsluna að tækjunum og tækninni í stað þess að nýta tækin og tæknina í þeim verkefnum sem verið er að fást við hverju sinni t.d. að ég láti nemendur mína vinna verkefni um árið 1918 og afurðin má vera stuttmynd, prezi kynning eða heimasíða. Ég er að nýta tæknina og þann tækjabúnað sem ég hef í skólanum til að láta nemendur vinna, safna upplýsingum o.s.frv. en ég er ekki að hugsa eingöngu um spjaldtölvuna sem staðgengil „vinnubókarinnar“. Ætla að skjóta því inn að ég er ekki hrifin af eyðufyllingum í verkefnabókum en sum forritin í spjaldtölvunum minna mig á gömlu eyðufyllingarnar. Nemendur sitja og ýta á rétta takka á réttum stöðum og það vantar skapandi eða krefjandi vinnu.

      • Þarna hittirðu eiginlega naglann á höfuðið – allavega hvað varðar fyrsta skrefið. Það er að við sem kennarar gerum okkur grein fyrir – og höfum ávallt í huga – að hlutirnir, og þá sérstaklega tæknin, breytist. Hvernig eigum við þá að haga okkar kennslu ef þetta er (eða verður) raunin? Eitt er, eins og þú segir, að færa fókusinn af tækninni (sem er sá þáttur sem við teljum að verði helst fyrir breytingum) og yfir á þekkinguna og hvernig hún nýtist. Næsta skrefið er svo að hafa ekki bara í huga að hlutir munu breytast heldur að miða okkar kennslu við fyrirsjáanlegar tæknilegar breytingar. Þá eykst vægi framtíðarfræða til muna.

        • … ok… en það sem mér finnst spennandi við breytingar í tækni, er þegar þær hafa – eða geta haft – djúpstæð áhrif á það hvernig við hugsum, og þá hvernig ákveðnir hlutir virka í samfélaginu. Dæmi: áhrif félagsmiðla eins og wiki á tikurð, eignarhsld og dreyfingu þekkingar. eða blogga og örblogga (twitter) á fréttaflutning… og þar með völd…

  • Tryggvi Thayer became a registered member 10 years, 6 months ago