Your site
20. apríl, 2024 03:38

Ársfundur Fræðslumiðstöðvar Atvinnulífsins

Smiðir skoða reist þak

Nám og vinnumarkaður

Er yfirskrift ársfundar Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins 2012 sem haldinn verður:

Fimmtudaginn 29nóvember kl. 13:30 til 16:30 á Hótel Natura við Reykjavíkurflugvöll

Þema fundarins í ár er nám og vinnumarkaður. Aðalfyrirlesari er Tormod Skjerve, aðalráðgjafi hjá Virke, samtökum atvinnurekenda í verslun og þjónustu í Noregi. Auk hans flytja Jakob Tryggvason, formaður Félags tæknifólks í rafiðnaði, Sólveig Kristinsdóttir, náms- og starfsráðgjafi hjá Fræðsluneti Suðurlands og Auður Þórhallsdóttir fræðslustjóri hjá Samskipum erindi á ársfundinum.

Aðgangur er ókeypis en við biðjum þá sem óska eftir að taka þátt í fundinum um að skrá sig: Skráning er á vef Fræðslumiðstöðvarinnar

Skildu eftir svar